sunnudagur, 28. október 2007

Þetta verður úr samhengi

Í fréttum er þetta helst að við erum búnar að þróa hina fullkomnu uppvöskunar-aðferð!
Stellu misbauð gjörsamlega hvernig ég vaska upp og það fór fyrir brjóstið á mér að sjá hana vaska upp. Þannig að við ákváðum að mixa aðferðirnar okkar saman. Við erum svo þroskaðar og duglegar að koma til móts við þarfir hvor annarrar enda gengur sambúðin einsog í sögu.

Ég er greinilega ekki ennþá búin að læra að vera á varðbergi gagnvart íslendingum hérna í Kaupmannahöfn. Ég var vægast sagt stórorð um ágæti ungs manns á kaffihúsi um helgina, sagði hluti einsog "Vá hvað þetta er heitur pabbi" og "Eruði að grínast hvað hann er sætur, hann var það fyrsta sem ég sá þegar ég vaknaði og ég hélt að mig væri ennþá að dreyma" (ég dottaði aðeins á kaffihúsinu)... Svo hringir síminn hjá kauða og hann svarar á íslensku!! Ég reyni að hugga mig við það að ég var allavegana langtlangt frá því að vera að segja eitthvað ljótt.

Við Hulda skólafélagi skelltum okkur í messu áðan. Við fórum nefninlega og skoðuðum Vor Frue Kirke með hinum frábæra Kaupamannahafnaráfanga á föstudaginn og kolféllum fyrir fegurð kirkjunnar og þá sérstaklega risavöxnu orgelinu. Messan var alveg ágæt, presturinn var frekar auðskyljanlegur og svo í endann fengum við sko aldeilis eitthvað fyrir okkar snúð. Þar sem við sátum algjörlega afslappaðar og andinn sveif yfir ..uu..gólfum... þá dúndraði orgelleikarinn mjög skyndilega á orgelið og missti sig í einhverju hryllingsmyndaglamri, sem að var geðveikt!

Fann þessa mynd á netinu en hún var tekin þegar verið var að minnast brunans mikla í Kaupmannahöfn.... flottflott

Íris kveður í bili :)

6 ummæli:

Adda Kristín sagði...

gott blogg íris! ég er svo stolt af því að eiga svona góða blogg-vinkonu, þú kemur mér alltaf meir og meir á óvart..og gott að þú ert orðin guðrækin aftur, hvort sem það er af heitri trú þinni á guð er bara aukaatriði ;)

arna sagði...

vó hvað þið eruð sniðugar þið Stella! :D frábært hjá ykkur að vera svona þroskaðar!! híhí... en já ég hélt að þú værir að tala um allt aðra krikju hihihihi.... en já frábært að þið fenguð að hlýða á orgelleik :D:D:D en já það er ein kirkja á Íslandi að fara að kaupa sér barokorgel sem er geeeeeeeeeðveikt haha eigum við að fara á "messutónleika" þegar þú kemur heim hihihihi

arna sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Eva Run:
Og eg grjotgleymdi messunni! Mer sem fannst tetta svo helviti kosy pæling. Kenni serstaklega illu amigkomulagi um tau mistok, var helmingurinn af sjalfri mer langt fram a kvold. Enda ju, sunnudagur.

Nafnlaus sagði...

Hahaha þú ert snillingur Íris ;)

Kv.Björg

Adda Kristín sagði...

jæææja..blogg?