miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Politik og glens

Það er ansi fámennt í skólanum í dag vegna þess að í gær gekk Daninn ad kjørkassanum. Hvort það er svona fámennt vegna mikils húllumhæs í gær eða vegna þess ad fólk hafi drekkt ser i kanalnum veit ég ekki enda botna ég hvorki upp né niður í danskri pólitík. Þó høfum við þurft að sitja undir nokkrum pólitískum fyrirlestrum undanfarið hér í skólanum sem er frekar fáránlegt þar sem stærsti hluti skólans hefur ekki kosningarétt í Danmørku og hefur mjøg takmarkaðan pólitískan orðaforða.
Kostningabaráttan hefur ekki farið framhjá okkur, aðallega vegna þess hversu svakalega misheppnuð hún er! Hér hanga hálfniðurringd og útkrotuð pappaskilti útum allann bæ. Fyrst hélt ég að það væri eitthvað átak gegn mannsali í gangi því eimdarsvipurinn a frambjóðendum er þvílíkur. Þetta er mjøg hlæilegt miða við glansauglýsingarnar heima, ekki það að ég sé hrifin af því hversu fáránlega háum fjárhæðum er eytt í auglýsingar heima. Hér er náð til fólks með auglýsingum útá gøtu en heima fer fúlgan í að ná til þjóðarinnar fyrir framan sjónvarpið og í bílunum sínum.
En nóg um það...

Arna og Snæfríður kíktu aðeins á okkur um helgina sem var rigtig sjovt! Arna var dugleg að taka video og hér eru tvø nokkurveginn byrtingarhæf:

Fløskustútur á Cafe Norden:


Ég og Arna í hjólataxa:

7 ummæli:

Adda Kristín sagði...

Vei vei vei vei vei blogg! og það mjög skemmtilegt..skemmtileg lesning svona á miðvikudagssíðdegi! ;)

Nafnlaus sagði...

hahaha þið eruð svo miklar dúllur í þessu myndbandi... :)

Nafnlaus sagði...

Ikke til venstre men den anden side!!!!
Hahahahaha

Annars er ég alveg búin að fá mig fullsadda af þessu kosninarugli og vona að manneskjan sem kom í dag með fyrirlestur hafi ekki tekist að skaða ykkur meir!

H

arna sagði...

hihi já þessi auglýsingarskilti voru hlægileg hihihihihahaha :) Hvernig var annars í frakkkkkllaaaandiiii???

Nafnlaus sagði...

Hae Hae!

Loksins komist i ad lesa eitthvad af blogginu ykkar og mjog skemmtileg lesning. Skemmtid ykkur greinilega vel tharna sem eg geri nu lika en hlutirnir eru kannski soldid olikir! Eg saknadi nu soldid Islands thegar eg las thetta allt saman og horfdi a thessi myndbond thvi hlutirnir hja ykkur eru adeins likari klakanum en hja mer!

Hafidi thad annars gott!
Kv. Marta Mirjam, vinkona Stellu i Mexico

Nafnlaus sagði...

Haha ja thessar kosningar voru svo mikid bull eitthvad. Thetta var frekar eins og mennaskolakosningar! Frambjodendur hukandi fyrir utan lestastodvar bjodandi kako. :) En skemmtilegt blogg Iris min!
Kv.Bjorg

Adda Kristín sagði...

jæjaaaaa..blogg? einhver?