miðvikudagur, 12. desember 2007

Okey

Við erum búnar að þjást af netleysi undanfarna daga. Netið okkar gaf bara upp öndina og við skiljum hvorki upp né niður. Erum búnar að skríða um alla íbúð í leit af interneti hjá saklausum nágranna og loksins fundum við eitt og það er akkurat semí ofaní eldhúsvaskinum. Þannig að ég er í mjög notalegri stellingu akkurat núna með eldhúskranan í andlitinu!
Annars fer ansi mikið að styttast í annann endann á þessu Danmerkur ævintýri okkar, við erum frekar leiðar yfir því en hlökkum aðsjálfsögðu líka til að koma heim. Það eru nokkrir hlutir sem að ég mun koma til með að sakna sárt við þetta áhyggjulausa líf hér, t.d. að vera bíllaus, það er ótrúlega þægilegt að labba bara allt eða stelast í lestina fyrir lengri ferðir. Svo eru aðrir hlutir sem við munum ekki sakna, t.d. að komast ekki inn til okkar afþví að það eru gaurar að sprauta sig á tröppunum hjá okkur. Annars eru þeir yfirleitt mjög kurteisir og eiga það til að daðra svolítið en við höfum ekki enn slegið til og boðið þeim upp, skil ekkert í okkur einsog þetta eru freistandi tilboð.

Framundan hjá okkur er svo bara áframhaldandi húllumhæ, engin próf hér á bæ! 15.Des verður kveðjukvöldverður hjá íslendingunum sem við erum búnar að kynnast hérna, hann mun fara fram á áströlskum veitingastað og ég er eiginlega meira stressuð en spennt, hef það ekki alveg í mér að borða Skippý. Daginn eftir er ég svo víst að verða 20 ára (finnst ég samt bara vera 10) og þá ætla allir í jólatívólí!! Það verður gott að innsigla 20 árin með góðu gubbi en ég virðist hafa erft sjóveikina úr föðurætt og hætti mér ekki lengur á vegasalt.



Vona að allir hafi það gott
Íris Sif

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

thú ert fyndin

Nafnlaus sagði...

Hah dulla, thid hjonin eru nu meiri snillarnir, eg elska thessa heimilislegu jolamynd af ykkur:D

Nafnlaus sagði...

Hahaha Skippy!
Hafdu thad lika gott:)

Nafnlaus sagði...

þú barasta getur ekki verið þekkt fyrir að borða Skippy!! Hlýtur að vera e-r grænmetis- eða núðluréttur á matseðlinum?! Annars getur þú bara valið nokkra for- og eftirrétti - oft mjög spennandi - og varla eru þau búin að stappa Skippy greyið saman við þá alla líka...? Kv. Helga frænka

Nafnlaus sagði...

Pant ég vera með í jólatívolíi! Þó það væri nú bara í anda:)... skemmtið ykkur vel dúllur síðustu dagana!! og íris, þú tekur kannski upp vocal-atriðið mikla og leyfir mér svo að sjá, hehe:p
kv. edda þ.

Nafnlaus sagði...

Ég held að ég éti mig bara sadda af ís í staðin fyrir Skippy :)
Já vá Edda ég ætla sko pottþétt að taka þetta atriði upp á video!! Var að fá að heyra áðan að það er búið að bæta við einhverju sem á að vera rosalega sexy HAHAHAHA ég get ekki beðið!!

arna sagði...

híhíhoho já ég pant líka koma með í tívolí....... oooo ég hlakka svo til að sjá ykkur dúllurnar aftur :)